
BABY LOCK élégante heimilisvél.
Vorum að fá nýja tölvustýrða saumavél sem hentar vel bæði minni saumastofum og í bútasaum. 363 sporgerðir, þar af 11 hnappagöt og tvær gerðir af stafrófum. Innbyggður yfirflytjari. Sér mótor fyrir spólun á undirtvinna (bobbin winder). Hnéspaði fylgir með fyrir saumfótslyftu - ekki þarf að sleppa höndum af efninu til að lyfta saumfætinum. Hægt að sauma án fótstigs, niðurfellanlegur flytjari og fleira. 15 saumfætur fylgja með auk vinnuborðs (sjá mynd). Gott saumarými. Sjá nánari upplýsingar hér (pdf. 250KB)

JUKI HZL 27Z heimilisvél
Einföld saumavél (ekki tölvustýrð), 22 sporgerðir, þar af eitt fjögurra þrepa hnappagat. Auðvelt að stilla og einföld í notkun.